12/08/2026
Við verðum í Hafnarhúsinu um helgina.
GÖTUMARKAÐUR | Það mun allt iða af lífi á götumarkaði Listasafns Reykjavíkur í porti Hafnarhúss laugardag og sunnudag 15. og 16. ágúst kl. 12–17.00 í porti Hafnarhúss við Tryggvagötu 17.
Boðið verður upp á einstaka markaðsstemningu í hjarta borgarinnar þegar Portið fyllist af yfir 50 spennandi og fjölbreyttum sölubásum með vintage-vörum, antík úr geymslunni, handverki, hönnun, bókum, vínylplötum og einstökum dýrgripum. Götumarkaðurinn er haldinn í samstarfi við Visteyri.
Fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að mæta en sérstakt tombólu- og sölusvæði verður ætlað börnum sem vilja koma með sitt eigið dót á tombólu og reyna á söluhæfileikana. Engin skráning nauðsynleg á tombólusvæðið, bara mæta með góssið!
Á meðal seljenda eru Visteyri, NOWHERE, Wabi Sabi, Munir, Góði hirðirinn, Mino, Björkin Vintage og fleiri og fleiri!
//
STREET MARKET | The Reykjavík Art Museum’s Street Market will be buzzing with life on Saturday and Sunday, 15– 16 August from 12–17h00 in Hafnarhús courtyard, Tryggvagata 17.
Get ready for a unique market atmosphere in the heart of Reykjavík as Portið comes alive with more than 50 exciting and diverse vendors. Browse a curated selection of vintage treasures, antiques, handcrafted goods, design products, books, vinyl records, and one-of-a-kind finds. The street market is organized in partnership with Visteyri.
Families are especially encouraged to attend. A dedicated raffle and children's market area will be available for kids who would like to bring their own items, run a raffle, or try their hand at selling. No registration is required, just show up with your treasures and join the fun.
Among the vendors are Visteyri, NOWHERE, Wabi Sabi, Munir, Góði hirðirinn, Mino, Björkin Vintage, and many more.