10/11/2023
KRAKKASTUND á feðradaginn!
🌟
Sunnudaginn 12. nóvember er FEÐRADAGUR á Íslandi. Þess vegna langar mig að hvetja feður til þess að koma í Völku vinnustofu og eiga GÆÐASTUND með barni sínu eða börnum. Í þessari þriðju krakkastund ætlum við að FLOSA! Það þarf engan handavinnugrunn til að flosa. Hvorki pabbi né barn þarf einu sinni að vita hvað þetta er!
🌟
Dagsetning: 12. nóvember.
Tímasetning: kl. 13-15.
Staðsetning: Mánamörk 1, Hveragerði.
Aldur: 6-12 ára.
Verð: 2.000kr. = pabbi + eitt barn.
3.500kr. = pabbi + tvö börn.
Hámark þátttakenda: 10 börn.
Innifalið í verði: allt í eitt flosverk. Það má svo að sjálfsögðu taka verkið heim (hægt að gefa pabba í feðradagsgjöf 😉). En flosnálin verður áfram í Völku.
🌟
Í stað pabba er að sjálfsögðu hægt að koma með afa, frænda eða öðrum 💕.
🌟
Það þarf ekki að skrá sig en skráning og greiðsla tryggir pláss. Hægt að skrá sig í skilaboðum eða á [email protected].
🌟
ALMENNT UM KRAKKASTUND:
Krakkastund er ekki námskeið.
Það verður hannyrðadót á staðnum sem krakkar geta prófað með foreldri sínu. Ég verð að sjálfsögðu á staðnum og leiðbeini þeim sem þurfa.
•
Foreldrar þekkja börnin sín best. Þetta er notaleg stund þar sem við hreyfum okkur ekki mikið og tölum með inniröddinni okkar. 🧡
🌟
Sjáumst! 😁