14/06/2026
Skrifstofurými nr. 02 - Myllan-Ora - 2025/2026 🌱
Eftir og fyrir myndir af skrifstofurými nr. 02 fyrir höfuðstöðvar Myllan-Ora. Áhersla var lögð á hlýlega og skemmtilega liti og mismunandi áferðir til að gefa rýminu ákveðna dýpt og léttleika. Með veggspjöldum, púðaverum, lýsingu og skrautmunum.
Mildu bleiku/dökkgráu skáparnir eru úr Hirzlunni, sem og skrifborðið sem er í trufflu-gráum lit með svörtum kanti.
Veggliturinn er Affogato frá Sérefni. Útveggurinn er málaður í dekkri grá-brúnum tón (F6.05.50) til að draga fram einstakt útsýni rýmisins 🤗