02/05/2026
Hallgrímur Helgason – 08.05 - 26.06.2026 | Opnun 08. maí kl. 17-19.
Við erum spennt að kynna sérstaka sýningu Hallgríms Helgasonar, „ »Það landa allir anda útá Granda“, hjá okkur í La Boutique Design. Sýningin stendur yfir frá 8. maí til 26. júní.
Á sýningunni verða málverk og teikningar úr mismunandi seríum og tímabilum, og við bjóðum þig hjartanlega velkominn á opnunina 8. maí frá kl. 17:00 til 19:00. Komið og njótið listaverkanna og hittið listamanninn. Léttar veitingar á opnuninni verða í boði frá Très Très Bon Ísland (www.ttb.is).
Hallgrímur Helgason er fæddur 1959 og starfar jafnhliða sem myndlistarmaður og rithöfundur. Hann hefur gefið út 13 skáldsögur sem sumar hafa komið út á yfir 14 tungumálum, verið kvikmyndaðar og settar á svið, 5 ljóðabækur, 2 barnabækur auk þess að hafa þýtt leikverk eftir Shakespeare og Molière.
Hallgrímur hefur haldið yfir 30 einkasýningar víða um lönd og á verk í eigu safna á Íslandi, Frakklandi og í Bandaríkjunum. Í ársbyrjun 2024 sýndi hann á öllum hæðum Nordatlantens brygge í Kaupmannahöfn og veturinn 2024-2025 stóð yfirlitssýning á verkum hans, Usli, yfir hjá Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum. Framundan er samsýning í Listasafni Akureyrar næsta haust, Í skugga átaka.
Málverk hans og teikningar eru jafnan fígúratíf, og innihalda oftast einhverskonar sögur. Flest eru þau í stíl sem stundum er realískur en þó oftar fantasískur, og áhrif sækir hann allt frá Goya til Guston.
Árið 2021 var hann sæmdur frönsku orðunni Officier de l’Ordre des arts et des lettres.
https://fb.me/e/74K2IcGLg