Lengsta fánalengja Tivoli, veifur síðustu ára, mun setja hátíðarblæ á daginn. Í ár einbeitum við okkur að því að skreyta innganginn. Prjónaðu þjóðhátíðarveifu fyrir Tívolí!
Í fyrsta sinn í sögu danska skemmtigarðsins Tívolí verður haldið upp á Þjóðhátíðardag Íslendinga. Það verður því mikið húllumhæ í garðinum föstudaginn 17. júní og hefur Tívolí haft samband og vill fá aðstoð íslenskra (og danskr
a) handprjónara til að skreyta garðinn.
Í tilefni þess höfum við unnið að hugmynd um handprjónaðar veifur úr íslenskum lopa. Hugmyndin kemur upphaflega frá hönnuðinum Védísi Jónsdóttur, sem skreytti jólatréð í Heiðmörk í fyrra með veifum úr ónothæfum lopapeysum. Við ætlum að taka veifurnar skrefinu lengra og ásamt því að nýta ónothæfar lopapeysur ætlum við að prjóna veifur úr rauðum, hvítum og bláum lopa. Halla Benediktsdóttir hefur skrifað uppskrift að veifu fyrir þá sem vilja hjálpa til, mikilvægt er að taka mið af íslenska fánanum þegar hugað er til litavals. Við vonum að sem flestir vilji leggja hönd á plóg og hjálpa okkur að skreyta Tivolí með handprjóni í íslenskum fánalitum. Markmiðið er að prjóna heilan kílómeter af veifum og verða fánarnir áfram nýttir á ári hverju og alltaf hægt að bæta við. Ætli við náum að slá heimsmet um lengsta fána heims eftir 10 ár?
Á sjálfan þjóðhátíðardaginn getur þú svo skundað í Tívolí að sjá veifuna þína og njóta hinnar íslensku skemmtidagskrár sem verður í boði. Einnig verður ennþá meira handprjón í boði á sjálfum deginum – fylgist með bæði hér í hópnum og á heimasíðu Tívolí varðandi nánari dagskrá; https://www.tivoli.dk/.../tivolifejrerislandsnationaldag2022
Um 17. júní frá Tívolí;
Islands Nationaldag er en del af eventserien Tivoli Fejrer, hvor vi markerer og fejrer forskellige mærkedage. Nogle events i den serie er gamle og kendte, som eksempelvis sankthansaften, og nogle havde vi debut på sidste år, som eksempelvis 4th of July og Bastilledagen. Fælles for alle events i serien Tivoli Fejrer er, at vi gerne vil gøre Tivoli til stedet, vores gæster kan komme hen, når de ønsker at fejre en mærkedag. Islands Nationaldag er et nyt event i serien, og det at det falder på en fredag er en kæmpe fordel. Vi kan i sammenspil med Havefest og Fredagsrock skabe et stort event, hvor vi markerer og tilbyder islandske traditioner, fejrer den islandske kultur og giver islændinge og øvrige gæster mulighed for at fejre dagen med alt hvad det indebærer; traditioner, mad og musik. Da eventet ligger på en fredag, har vi musik fra om eftermiddagen, og mange af Tivolis scener vil blive aktiveret og eventet rundes af med et stort fredagsrocknavn kl. 22.00. Vi forventer rigtig mange gæster i Haven den dag, og det er den perfekte mulighed for at få skabt en fast tradition for denne fejring af Islands Nationaldag i Tivoli.