17/06/2026
Model 42 er einn þekktasti stóll danska húsgagnahönnuðarins Kai Kristiansen. Hann var hannaður á fimmta áratug síðustu aldar og er talinn eitt af táknmyndum danskrar húsgagnahönnunar. Einstaklega vel hannaður til að draga að borði og gefur auk þess létt og fágað yfirbragð. Bakið er ögn hreyfanlegt og fylgir vel líkamsstöðu notandans.
Viðurinn var hreinsaður upp og olíuborinn.
Leðrið er frá NEVOTEX og heitir “Vintage” og liturinn chocolate. Þetta leður er frekar “hrátt” og verður bara flottara með tímanum.
Það var glöð kona sem setti þessar gersemar í skottið og keyrði norður til Akureyrar