28/08/2026
Konfektnámskeið Halldórs hafa verið haldin sl. 29 ár og eru alltaf jafn vinsæl. 🍫
Þetta er tilvalin kvöldstund fyrir vinahópa, vinnufélaga, saumaklúbba eða einstaklinga sem vilja læra grunnatriði í konfektgerð.
Hver og einn þátttakandi lærir að búa til sitt eigið konfekt með fyllingu ásamt því að tempra ljóst súkkulaði (mjólkursúkkulaði).
Innifalið er kennsla, hráefni og að sjálfsögðu afrakstur kvöldsins til að taka með sér heim.
Námskeiðið tekur um 2 klst og leiðbeinandi er Halldór Kr. Sigurðsson, konditor og bakari.
Fyrir frekari upplýsingar og bókanir: [email protected]