BK DECOR

BK DECOR Innnanhússstílisti | Interior Decorator HVAÐ GERIR INNANHÚSSSTÍLISTI? Innanhússstílisti aðstoðar við að fegra rými þegar ekki er þörf á skipulagsbreytingum.

Hann vinnur með núverandi skipulag og breytir uppröðun húsgagna og fylgihluta til að nýta rýmið sem best. Innanhússstílisti aðstoðar við litasamsetningu, húsgagnaval ásamt skrautmunum, efnisval, lýsingu, gardínuval o.fl. Það hefur einnig færst í aukanna að innanhússstílisti sjái um allt ferlið en þá fer hann og kaupir inn þau húsgögn og fylgihluti sem vantar í rýmið og sér um allt ferlið til enda.

Innanhússstílisti vinnur almennt ekki með verktökum né arkitektum þar sem byggingaframkvæmdum er almennt lokið þegar innanhússstílisti kemur að verkinu.

Hver er manneskjan á bakvið BK Decor?Ég heiti Begga Ku**er og hef síðan 2020 hjálpað fólki að fegra heimili sín og fyrir...
18/05/2026

Hver er manneskjan á bakvið BK Decor?

Ég heiti Begga Ku**er og hef síðan 2020 hjálpað fólki að fegra heimili sín og fyrirtæki.
Sérsvið mitt er rýmisgreining — staðsetning húsgagna og nýta hvern fermetra sem best. Ég elska líka allt sem tengist stíliseringu, litavali og því að skapa fallegt og hlýlegt rými sem fólki líður vel í ✨

En hver er ég utan vinnunnar?
Skrauthæna sem finnst gaman að hafa sig til.
Ég er gift og á tvö börn… og tvo naggrísi sem við gáfum börnunum í jólagjöf fyrir nokkrum árum - viðurkenni að ég hef alveg fengið betri hugmyndir 😄

Annars elska ég allt sem heitir ,,námskeið” – og veit ekki hvað ég hef ekki farið á, og búin að sanka að mér ýmsum réttindum, — allt frá minni námskeiðum yfir í skotvopnapróf og meirapróf á bíl og eftirvagn 🚛
Og ef þið hafið ekki tekið eftir því ennþá… þá er ég orðin golfsjúk ⛳️
- og á í ástar haturs samband við það sport 😉

Takk kærlega fyrir að fylgja BK Decor - Það þýðir meira en þið haldið 🫶

Og ef ykkur dettur einhver í hug sem væri til í smá innblástur. Þá megið þið endilega deila síðunni áfram.

Eitt af mínum uppáhalds verkefnum 🥰
07/05/2026

Eitt af mínum uppáhalds verkefnum 🥰

B R O N S þjónustuleiðInnanhússráðgjöf – eitt skipti⏱ 1 klst. ráðgjöf – einföld, gagnleg og hvetjandi.Þarftu að koma þér...
27/04/2026

B R O N S þjónustuleið
Innanhússráðgjöf – eitt skipti

⏱ 1 klst. ráðgjöf – einföld, gagnleg og hvetjandi.

Þarftu að koma þér af stað í framkvæmdir, en veist ekki alveg hvar á að byrja?
Ég aðstoða með uppröðun, flæði og hugmyndir til að ná betri nýtingu og jafnvægi í rýminu þínu.

📍 Höfuðborgarsvæði
Verð: 45.000 kr + vsk

📍 Utan höfuðborgarsvæðis
(Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Grindavík, Reykjanesbær...)
Verð: 55.000 kr + vsk

Hægt er að bæta við auka þjónustu á BRONS leiðina.

Vertu velkomin að hafa samband:
📧 [email protected]
📞 695 9513

Leyndarmálið á bakvið veggmyndir — það sem enginn segir þér:1. Veggmynd er hengd of hátt Gott ráð er að miða miðju mynda...
20/04/2026

Leyndarmálið á bakvið veggmyndir — það sem enginn segir þér:

1. Veggmynd er hengd of hátt
Gott ráð er að miða miðju myndarinnar í augnhæð, u.þ.b. 145-150 cm frá gólfi.

2. Stærð myndar skiptir máli
Of lítil mynd á stórum vegg lítur aldrei vel út. Því stærri því betra.

3. Ramminn er hluti af myndinni
Ramminn á að styðja við myndina, ekki hverfa.

4. Myndaveggur
Áður en þú byrjar. Leggðu myndirnar á gólfið og skipulegðu þær áður en þú ferð að bora í vegginn.

5. Bil á milli mynda
Ekki meira en 8cm bil á milli mynda. Þú vilt að þær tali saman.

6. Stórt málverk - ein regla
Eitt stórt málverk þarf ekki félaga. Láttu hana vera aðalatriðið.

Fallega útfærð lítil forstofa þar sem fegurð og notagildi fara saman 🫶Gangaborðið skapar fallega umgjörð, spegillinn gef...
17/04/2026

Fallega útfærð lítil forstofa þar sem fegurð og notagildi fara saman 🫶

Gangaborðið skapar fallega umgjörð, spegillinn gefur rýminu mýkt og skrautmunirnir bæta hlýju við heildarmyndina.
Skemlarnir undir borðinu nýta plássið vel og fullkomna heildarmyndina 🤍

Sérsniðin þjónusta fyrir þá sem vilja fagmann til hafa umsjón með ferlinu — frá fyrstu hugmynd að fullbúnu og tilbúnu rý...
08/04/2026

Sérsniðin þjónusta fyrir þá sem vilja fagmann til hafa umsjón með ferlinu — frá fyrstu hugmynd að fullbúnu og tilbúnu rými.

Þjónustan hentar sérstaklega vel fyrir þá sem búa erlendis, eru í fasteignakaupum eða kjósa að hafa allan undirbúning og framkvæmd í öruggum og faglegum höndum.

Innifalið:
• Skipulag, teikningar og hönnunartillögur
• Val á efnum, innréttingum og húsgögnum
• Innkaupaumsjón og samskipti við birgja
• Samráð og samskipti við verktaka
• Eftirlit og eftirfylgni í gegnum allt ferlið
• Stílisering og lokafrágangur fyrir afhendingu

Vertu velkomin að hafa samband til að fá verðtilboð.
✉️ [email protected]

Hliðarborð gera lífið einfaldara 🤍Hinn fullkomni staður fyrir drykkinn, kaffibollann eða eitthvað gott snarl á meðan þú ...
07/04/2026

Hliðarborð gera lífið einfaldara 🤍

Hinn fullkomni staður fyrir drykkinn, kaffibollann eða eitthvað gott snarl á meðan þú slakar á og nýtur augnabliksins. Lítið borð sem skiptir miklu máli fyrir bæði þægindi og heildarútlit rýmisins.

Í mínum verkefnum legg ég áherslu á lausnir sem eru bæði fallegar og hentugar – því það á að vera auðvelt að hafa það huggulegt.

*** GJAFALEIK LOKIÐ ***Gleðilega páska kæru fylgjendur 🐣🌿Mig langar að þakka fyrir ykkur með fallegri gjöf 💛Einn heppinn...
02/04/2026

*** GJAFALEIK LOKIÐ ***

Gleðilega páska kæru fylgjendur 🐣🌿

Mig langar að þakka fyrir ykkur með fallegri gjöf 💛
Einn heppinn fylgjandi vinnur BRONS innanhússráðgjöf ✨

Ráðgjöfin felur í sér:
• Persónulega ráðgjöf fyrir þitt rými
• Hugmyndir að uppröðun húsgagna og fylgihluta
• Tillögur að einföldum breytingum sem skapa meiri hlýju og jafnvægi 🌿

Til að taka þátt:
🐣 Fylgdu .is á Instagram
🐣 Lækaðu þessa færslu
🐣 Taggaðu einhvern sem myndi elska þennan vinning

Aukastig fyrir að deila í story ✨

Dregið verður fimmtudaginn 9. apríl
Megi heppnin vera með þér 💛

Lítil breyting - stór áhrif 🌱Hér fékk sjúkraþjálfara- og viðtalsherbergi hlýrra yfirbragð. Með einföldum en markvissum b...
01/04/2026

Lítil breyting - stór áhrif 🌱

Hér fékk sjúkraþjálfara- og viðtalsherbergi hlýrra yfirbragð. Með einföldum en markvissum breytingum var andrúmsloftið gert hlýrra og meira aðlaðandi.

Fundarherbergi Lítið rými með mikla möguleika.Með því að bæta gardínum fyrir glerið náðum við að auka næði og færa rýmin...
23/03/2026

Fundarherbergi

Lítið rými með mikla möguleika.
Með því að bæta gardínum fyrir glerið náðum við að auka næði og færa rýminu meiri hlýleika og ró.

Address

Reykjavík

Telephone

+3546959513

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when BK DECOR posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to BK DECOR:

Share