BK DECOR - Innanhússráðgjöf

Call Directions Website Contact the business

BK DECOR - Innanhússráðgjöf Innnanhússstílisti | Interior Decorator HVAÐ GERIR INNANHÚSSSTÍLISTI? Innanhússstílisti aðstoðar við að fegra rými þegar ekki er þörf á skipulagsbreytingum.

Hann vinnur með núverandi skipulag og breytir uppröðun húsgagna og fylgihluta til að nýta rýmið sem best. Innanhússstílisti aðstoðar við litasamsetningu, húsgagnaval ásamt skrautmunum, efnisval, lýsingu, gardínuval o.fl. Það hefur einnig færst í aukanna að innanhússstílisti sjái um allt ferlið en þá fer hann og kaupir inn þau húsgögn og fylgihluti sem vantar í rýmið og sér um allt ferlið til enda. Innanhússstílisti vinnur almennt ekki með verktökum né arkitektum þar sem byggingaframkvæmdum er almennt lokið þegar innanhússstílisti kemur að verkinu.

Góð húsgagnakaup byrja löngu áður en þú ferð í búðina.1. Byrjaðu á heildarmyndinniHvernig viltu að rýmið líti út og hver...
06/10/2026

Góð húsgagnakaup byrja löngu áður en þú ferð í búðina.

1. Byrjaðu á heildarmyndinni
Hvernig viltu að rýmið líti út og hvernig viltu að þér líði í því?

2. Safnaðu innblæstri
Vistaðu myndir sem höfða til þín og finndu rauðan þráð: litir, form, efni og stíll.

3. Veldu litapallettu
Veldu nokkra tóna sem vinna vel saman og leyfðu þeim að leiða valið áfram.

4. Byrjaðu á skipulaginu
Gott skipulag og flæði kemur á undan húsgagnavalinu.

5. Mældu áður en þú kaupir
Mældu og teipaðu stærri húsgögn á gólfið til að sjá hlutföll og gönguleiðir.

6. Skoðaðu heildina áður en þú kaupir
Settu húsgögn, mottu, liti og skrautmuni saman á moodboard. Fallegir hlutir þurfa líka að vinna saman sem ein heild.

Skipulag fyrst - Innkaup svo! 1. Byrjaðu á heildarmyndinniHvernig viltu að rýmið líti út og hvernig viltu að þér líði í ...
06/10/2026

Skipulag fyrst - Innkaup svo!

1. Byrjaðu á heildarmyndinni
Hvernig viltu að rýmið líti út og hvernig viltu að þér líði í því?

2. Safnaðu innblæstri
Vistaðu myndir sem höfða til þín og finndu rauðan þráð: litir, form, efni og stíll.

3. Veldu litapallettu
Veldu nokkra tóna sem vinna vel saman og leyfðu þeim að leiða valið áfram.

4. Byrjaðu á skipulaginu
Gott skipulag og flæði kemur á undan húsgagnavalinu.

5. Mældu áður en þú kaupir
Mældu og teipaðu stærri húsgögn á gólfið til að sjá hlutföll og gönguleiðir.

6. Skoðaðu heildina áður en þú kaupir
Settu húsgögn, mottu, liti og skrautmuni saman á moodboard. Fallegir hlutir þurfa líka að vinna saman sem ein heild.

Smelltu endilega á ❤️ ef þér líkaði færslan.

Sjónvarps-, prjóna- og lesrými Sjónvarpsrýmið má vera meira en bara staður til að horfa á sjónvarpið. Með góðum sófa, no...
05/10/2026

Sjónvarps-, prjóna- og lesrými

Sjónvarpsrýmið má vera meira en bara staður til að horfa á sjónvarpið. Með góðum sófa, notalegri lýsingu og þægilegum hægindastól verður til rými þar sem allir geta fundið sitt pláss.

BK Decor er 6 ára! 🥂Það eru heil 6 ár síðan BK Decor varð til og af því tilefni langar okkur að bjóða upp á sérstakt afm...
24/09/2026

BK Decor er 6 ára! 🥂

Það eru heil 6 ár síðan BK Decor varð til og af því tilefni langar okkur að bjóða upp á sérstakt afmælisverð á BRONS innanhússráðgjöf.

Afmælisverð 39.900 kr. + vsk.

Einungis 6 dagsetningar í boði í október:

• 7. október • 12. október • 14. október
• 21. október • 23. október • 28. október

Takk fyrir síðustu 6 ár. Takk fyrir traustið, verkefnin, meðmælin og fyrir að fylgja BK Decor.
Ég er óendanlega þakklát fyrir ykkur 🤍

Skál fyrir næstu 6! 🥂

Er kominn tími á að gera skrifstofuna aðeins meira aðlaðandi? Hvort sem um er að ræða eitt rými sem þarf smá yfirhalning...
22/09/2026

Er kominn tími á að gera skrifstofuna aðeins meira aðlaðandi?

Hvort sem um er að ræða eitt rými sem þarf smá yfirhalningu eða stærri breytingar á skrifstofunni varðandi skipulag, húsgagnaval, liti og heildarútlit.

Gerum vinnustaðinn að rými sem bæði starfsfólki og gestum líður vel í.

Í þessu verkefni var skipt út öllum húsgögnum í stofu að undanskildum einum hægindastól.Áhersla var lögð á að skapa nota...
14/09/2026

Í þessu verkefni var skipt út öllum húsgögnum í stofu að undanskildum einum hægindastól.

Áhersla var lögð á að skapa notalegt og hlýlegt samverurými þar sem gott er að setjast niður og dvelja.
Uppröðun húsgagna að leiðarljósi, gott flæði og nærandi rými.

Síðarmeir verður veggjalitur skipt út fyrir hlýrri lit ❤️

Áður en þú kaupir ný húsgögn – skoðum fyrst rýmið. Það er algjört lykilatriði að hafa skýra sýn áður en farið er í húsga...
11/09/2026

Áður en þú kaupir ný húsgögn – skoðum fyrst rýmið.

Það er algjört lykilatriði að hafa skýra sýn áður en farið er í húsgagnakaup.

Með fjarþjónustu BK Decor færðu tvær 3D tillögur að skipulagi svo þú vitir hvað virkar, hvaða stærðir passa og hvað þú ert að leita að áður en þú ferð af stað í húsgagnaverslanir.

Þú sendir mér teikningar, myndir og mælingar – ég skila þér 3D tillögum og PDF-samantekt.

✨ Minni líkur á dýrum mistökum
✨ Skýrari sýn
✨ Markvissari húsgagnakaup

Hægt er að bæta við innkaupalista að húsgögnum.

Fyrst skipulagið - svo húsgagnakaupin.

Litir, áferðir og litlu smáatriðin sem skapa heildina. Vantar þig aðstoð við að finna réttu tónana fyrir þitt rými?BK De...
08/09/2026

Litir, áferðir og litlu smáatriðin sem skapa heildina.

Vantar þig aðstoð við að finna réttu tónana fyrir þitt rými?
BK Decor bíður upp á innanhússráðgjöf fyrir heimili & fyrirtæki.

Gestabaðherbergi Kvartsít steinn - Viður - Flísar - Mjúk lýsing.Einfalt, hlýlegt og tímalaust.
01/09/2026

Gestabaðherbergi

Kvartsít steinn - Viður - Flísar - Mjúk lýsing.
Einfalt, hlýlegt og tímalaust.

Yngri dóttirin fékk loksins herbergis ,,makeover”.  Við máluðum herbergið, settum upp gardínur og bættum við nokkrum nýj...
27/08/2026

Yngri dóttirin fékk loksins herbergis ,,makeover”.

Við máluðum herbergið, settum upp gardínur og bættum við nokkrum nýjum hlutum sem breyttu heildarsvipnum svo mikið.

Það þarf nefnilega ekki alltaf að breyta öllu til að skapa nýja tilfinningu í rýminu.

Nýr litur á veggina, fallegar gardínur og nokkur vel valin smáatriði geta gert ótrúlega mikið.

Address

Reykjavík

Telephone

+3546959513

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when BK DECOR - Innanhússráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to BK DECOR - Innanhússráðgjöf:

Shortcuts

Share