17/06/2026
Fiskurinn:
500 gr þorskur skorin í ræmur, saltaður og vellt upp úr hveiti þanngi að bjórdegið loði betur við hann. En é glemdi þessu í myndbandinu 🫣🤣
Bjórdeig:
1 bolli hveiti
1/2 bolli Panko rasp
2 tsk Lyftiduft
1 tsk paprikka
1/tsk cayenne pepper
1 tsk hvítlauksduft
1 tsk laukduft
1 tsk salt
1 tsk cumin
1 bolli bjór
1 egg
öllu hræt saman
Takið fyskilengurnar úr hveitinu og setjið í bjórdegið. Ég steikti þær síðan í olíu á djúpri pönnu
Spicy Mayo
2 msk Majones
2 msk sýrður rjómi
1 msk Sriracha hot chili sósa
safi úr 1/2 lime
Öllu hrært saman
Taco
1,5 bolli hveiti
1/2 tsk salt
1/2 tsk lyftiduft
1/6 bolli Extra virgin ólífu olía
1/2 boll heitt vatn
Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið þeim vel saman. Bætið við Olíu og vatni og hnoðið saman á meðal hraða. Þegar deigið er komið saman í kúlu þá lækkið þið hraðann á vélinni og hnoðið í sirka 1 mínútu.
Skiptið síðan deiginu í 8 bita og látið bíða undir röku viskustikki í 15 mínútur. Allt í lagi að láta bíða lengur.
Fletjið síðan kökurnar út og hafið þær þunnar. Síðan er hægt að smella þeim á grillið eða pönnu til að elda þær.