01/09/2023
Ég fékk það skemmtilega verkefni að hanna íbúðina mína í Vilnius en þetta er lítil 60 fermetra íbúð í nýbyggingu í gamla bænum. Við hjónin fengum hana afhenda tilbúna undir tréverk svo ég fékk algjörlega frjálsar hendur með allar innréttingar, efnis- og litaval.
Gólfið er terrazzo, innihurðir eru dökk eik og innréttingarnar eru úr reyktri eik. Voke3 sérmíðaði allar innréttingar eftir mínum teikningum og gerðu í fyrsta sinn svona hringlaga grip. Það kom svo ekkert annað til greina en að hafa boröplöturnar úr marmara, bæði í eldhúsi og á baði.
Korkur er eitt af mínum uppáhalds efnum, en möguleikarnir með þetta geggjaða efni eru nánast endalausir. Ég heilklæddi veggi í herbergjunum með dökkum brenndum korki sem gefur einstaklega hlýlega og notalega stemningu og svo nýtist þetta líka sem korktafla og auðvelt að festa upp myndir og annað með gömlu, góðu teiknibólunum.
Ég er mjög ánægð með útkomuna og okkur líður svaka vel hérna í þessari fallegu borg.