Betur sjá augu en auga og það á líka við um heimili okkar.
Address
Reykjavík
112
General information
Verðskrá Almenn ráðgjöf fyrir heimilið Hér eru tveir valmöguleikar í boði. Annars vegar ráðgjöf á staðnum eða ráðgjöf í gegnum tölvupóst. Á staðnum Klukkustundar vinna á staðnum sem felur í sér ráðgjöf. Hér getur þú valið rými, herbergi eða hvað sem er sem þig vantar aðstoð með. Samdægurs fær viðskiptavinur senda skýrslu sem inniheldur það sem farið var yfir. Þessi leið hentar mjög vel þeim sem vilja aðstoð við að setja punktinn yfir i-ið. Þjónustan kostar 12900 m.vsk Í gegnum tölvupóst Hér gefst viðskiptavinum kostur á að fá ráðgjöf í gegnum tölvupóst eða annan hentugann vefmiðil. Gert er ráð fyrir 30 mínútna ráðgjöf sem byggist á því að unnið er út frá myndum sem ráðgjafa eru sendar. Hér þarf að vera búið að skipuleggja sig vel og svo tíminn nýtist sem best. Samdægurs fær viðskiptavinurinn svo senda skýrslu. Þessi leið hentar mjög vel þeim sem þurfa aðstoð við skipulagningu, litaval eða annað á afmörkuðu svæði innan heimilisins. Þjónustan kostar 6900 m.vsk Undirbúningur fyrir sölu/útleigu Hér er gert ráð fyrir allt að tveggja klukkustunda vinnu á staðnum, sem felur í sér ráðgjöf og aðstoð við að ná fram því besta sem eignin hefur upp á að bjóða. Hér er farið í gegnum uppröðun húsgagna, litaval, val á aukahlutum ofl. Samdægurs fær svo viðskiptavinur sendan tölvupóst með skýrslu þar sem tekið er fyrir hvert rými fyrir sig sem hann getur haft til hliðsjónar þegar undirbúningur hefst. Samhliða þessari þjónustu gefst viðskiptavinum færi á að leigja smærri húsgögn, skrautpúða, vasa, kertastjaka, rúmteppi og fleira sem er svo skilað að opnu húsi loknu. Þjónustan kostar 17900 með vsk Stærri verkefni Ekkert verkefni er of stórt . Sért þú að fara gera upp, breyta eða ráðast út í aðrar framkvæmdir og vantar lausnir og ráð þá skaltu hafa samband og ég geri verðtilboð þér að kostnaðarlausu. Önnur þjónusta Útleiga á innanstokksmunum, borðbúnaði ofl. Leiguverð miðast við sólarhring og er í kringum 5% af andvirði þess sem leigt er út.
Telephone
Website
Alerts
Be the first to know and let us send you an email when Helgust-innanhússráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.
Contact The Business
Send a message to Helgust-innanhússráðgjöf: