GLÁMA/KÍM Arkitektar

GLÁMA/KÍM Arkitektar Heimasíða www.glamakim.is The scope of the certificate encompasses consultancy in the areas of architecture, planning and environmental design.

Verkefni stofunnar eru fjölbreytileg, má þar nefna:

• Aðalskipulag
• Deiliskipulag
• Mannvirkjahönnun
• Innanhússhönnun
• Húsgagnahönnun
• Verkteikningar
• Verksamningar
• Áætlanagerð og eftirlit
• Eignaskiptayfirlýsingar

Gláma-Kím starfrækir gæðakerfi sem samræmist kröfum í ÍST EN ISO 9001:2000. Vottorðið tekur til ráðgjafarþjónustu á sviðum arkitektúrs, skipulags og umhverfishönnunar.
_ _ _

W

hat we do:

• Master planning
• Regional planning
• Architecture
• Interior design
• Furniture design
• Schematic design
• Project drawings
• Project documents
• Scheduling and monitoring

Gláma-Kím operates a quality control system that fulfils the requirements in ÍST EN ISO 9001:2000.

Á 6. og 7. áratug síðustu aldar vour reist mörg framúrskarandi íbúðarhús á Íslandi. Húsin einkennast af einföldum rétthy...
06/03/2026

Á 6. og 7. áratug síðustu aldar vour reist mörg framúrskarandi íbúðarhús á Íslandi. Húsin einkennast af einföldum rétthyrndum formum þar sem skreyti er afmáð, gluggagerðir eru einfaldaðar, jafnvægi er á milli láréttra og lóðréttra lína og skil á milli ytra og innra rýmis voru afmáð með nýjum byggingatæknilegum lausnum. Veggflötum er deilt upp í afmarkaða efnis- og litafleti, hreinskorin heildarform, létt og svífandi þakform og notkun andstæðra grunnlita. Þetta voru verk íslenskra arkitekta sem unnu í anda módernisma.

Á meðal þeirra arkitekta sem teiknuðu í anda þessarar hreinstefnu var Guðmundur Kr. Kristinsson arkitekt (1925-2001). Mörg húsa hans féllu undir vaxtarbrodd nýsköpunar í íslenskum arkitektúr þess tíma. Það einkennir verk hans að gerður var greinarmunur á eðli burðarvirkis, þ.e. súlur og berandi veggir annars vegar og léttir veggir hinsvegar. Burðarvirkið gjarnan steyptir veggir eða súlur, en útveggir að öðru leyti ýmist úr múrsteini, timbri eða léttum einingum.

Gláma/Kím hefur annast endurgerð og breytingar á nokkrum verka Guðmundar. Öll húsin eru framúrskarandi dæmi um vandaðan arkitektúr. Það er mikilvægt að skynja og skilja inntak hugmynda- og formfræði arkitektúrs húsanna áður en hafist er handa við breytingar. Það þarf að virða grunnhugmyndir höfundar og viðhafa natni og alúð við öll úrlausnar- og framkvæmdaatriði endurgerðar.

Þau hús sem Gláma/Kím hefur annast endurgerð/breytingar á eru Mávanes í Garðabæ, Bjarmaland í Reykjavík og Barðaströnd á Seltjarnarnesi. Þá hefur Gláma/Kím séð um nokkrar breytingar í Háskólabíói við Hagatorg sem Guðmundur teiknaði í samstarfi við arkitektana Gunnlaug Halldórsson og Ferdinand Alfreðsson.

Address

Laugavegur 164
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when GLÁMA/KÍM Arkitektar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to GLÁMA/KÍM Arkitektar:

Shortcuts

Share