17/05/2026
Aukanámskeið í innanhússhönnun miðvikudaginn 20. maí. Tvö pláss laus fyrir áhugasama. Nánari upplýsingar hér að neðan.
Nú er ég farin af stað aftur með vinsæl námskeið í innanhússhönnun. Þau eru hugsuð fyrir alla áhugasama sem og þá sem vilja ná meiri færni og öryggi í að vinna með umhverfi sitt. Um er að ræða nýtt námskeið þar sem farið er yfir þætti sem skipta grundvallarmáli í því að ná að skapa heildrænt yfirbragð, að vinna með rými sem heild og að skapa jafnvægi og samhljóm.
Meðal þess sem farið er yfir eru litir, viður og samband viðartegunda, efnisnotkun og áferðir, skipulag og uppröðun, stærðir og hlutföll, lýsing og textíll.
Ég fer ítarlega yfir þessi atriði og styðst við myndir á skjá, býð upp á léttar veitingar og kalla á spjall og spurningar.
Námskeiðið er frábær skemmtun fyrir hópa sem vilja taka sig saman.
Aukanámskeið:
20. maí, miðvikudagur, 18:15–21:00.
Ég held námskeiðið heima hjá mér í miðbæ Reykjavíkur.
Verð 30 þúsund krónur.
Skráning og frekari upplýsingar á [email protected] eða í DM á instagram.