Fastus lausnir

Fastus lausnir Tæki, vörur og ráðgjöf fyrir veitingastaði, hótel og fyrirtæki Helstu viðskiptavinir okkar eru veitingastaðir, hótel, barir, fyrirtæki og stofnanir.

Hjá Fastus lausnum bjóðum við heildarlausnir sem samanstanda af breiðu vöruúrvali og sérhæfðri ráðgjöf, sérsniðið að þörfum hvers og eins viðskiptavinar.

Til hamingju með Makona og takk fyrir frábært samstarf, Glenn! Við erum stolt af því að fá að taka þátt í þessari vegfer...
19/05/2026

Til hamingju með Makona og takk fyrir frábært samstarf, Glenn!

Við erum stolt af því að fá að taka þátt í þessari vegferð með ykkur og hvetjum alla til að kynna sér þessa flottu viðbót við íslenskt veitingalíf.

Glenn Moyle er frá Nýja-Sjálandi og rekur veitingastaðina Makona og Ambrosio Kitchen. Hann kom fyrst til Íslands árið 2004 og segist hafa heillast af fegurð landsins og hlýju fólksins.

Matreiðslumaðurinn Michael Jauss ætlar að vera með sýnikennslu á Convotherm ofnana okkar fimmtudaginn 7. Maí milli 9:00 ...
04/05/2026

Matreiðslumaðurinn Michael Jauss ætlar að vera með sýnikennslu á Convotherm ofnana okkar fimmtudaginn 7. Maí milli 9:00 - 13:00 í sýningareldhúsi Fastus, Höfðabakka 7.
Við hvetjum ykkur til að koma til okkar í Fastus og sjá valkostina með eigin augum. Hlökkum til að sjá þig!

Útskriftarnemendur af framreiðslu- og matreiðslubrautum Menntaskólans í Kópavogi kíktu til okkar í Fastus á dögunum. Við...
29/04/2026

Útskriftarnemendur af framreiðslu- og matreiðslubrautum Menntaskólans í Kópavogi kíktu til okkar í Fastus á dögunum.
Við náðum skemmtilegu spjalli við hópinn og fengum að kynna Fastus fyrir þeim. Það er alltaf sérstaklega ánægjulegt að hitta metnaðarfullt fólk á leið út í greinina.
Sem stoltur samstarfsaðili skólans þökkum við kærlega fyrir heimsóknina – framtíðin er ykkar!

Fastus býður nú upp á Birkenstock Pro vörulínuna í sérpöntun (ath stuttur afhendingatími)8 skótýpur í 38 litum í boði í ...
01/04/2026

Fastus býður nú upp á Birkenstock Pro vörulínuna í sérpöntun
(ath stuttur afhendingatími)
8 skótýpur í 38 litum í boði í stærðum frá 35 - 46 EU

Birkenstock Pro er sérhönnuð fyrir krefjandi vinnuumhverfi í þjónustu- og heilbrigðisgeiranum. Skórnir sameina hinn þekkta Birkenstock innsóla með endurbættum ytri sóla sem býr yfir rennivörn, antistatic eiginleikum og er auðveldur í þrifum. Birkenstock Pro eru því frábær kostur fyrir þau sem standa lengi í vinnunni og vilja ekki fórna þægindum fyrir öryggi.

Sjáðu úrvalið hér:
https://fastuslausnir.is/fatnadur/birkenstock/

Snædís Xyza Mae Ocampo hefur tryggt sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or með glæsilegum árangri. Á bak við þennan árangur lig...
17/03/2026

Snædís Xyza Mae Ocampo hefur tryggt sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or með glæsilegum árangri.

Á bak við þennan árangur liggur mikil vinna, agi og skýr sýn. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með undirbúningnum og þeirri fagmennsku sem einkennir Snædísi og teymið hennar í hverju einasta skrefi.

Við erum stolt af því að fá að styðja við bakið á Bocuse d'Or teymi Íslands og hlökkum til að fylgjast með framhaldinu.

Við óskum Snædísi og teyminu hennar velfarnaðar í úrslitunum.

Þá er loksins komið að stóra deginum! Í dag keppir Snædís Xyza Mae Jónsdóttir fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni Bocuse d...
16/03/2026

Þá er loksins komið að stóra deginum!

Í dag keppir Snædís Xyza Mae Jónsdóttir fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni Bocuse d’Or í Marseille.
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Fastus fengið að fylgjast með Snædísi undirbúa sig af miklum krafti og fagmennsku. Það hefur verið sannur heiður fyrir okkur að fá að styðja hana í þessari vegferð.
Við óskum Snædísi og teyminu hennar innilega góðs gengis í dag.
Áfram Ísland!

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni Bocuse d'Or í Marseille um helgina.

Frábært viðtal við Sigurð Helgason, þjálfara Snædísar Xyxa Mae Jónsdóttur sem keppir fyrir hönd Íslands í Bocuse d’Or.Sn...
11/03/2026

Frábært viðtal við Sigurð Helgason, þjálfara Snædísar Xyxa Mae Jónsdóttur sem keppir fyrir hönd Íslands í Bocuse d’Or.
Snædís hefur æft af krafti hjá okkur í Fastus síðustu vikur og nú styttist í keppnina 16. mars.

Hér fyrir neðan má lesa greinina í heild sinni.

Sigurður Helgason þjálfar Snædísi Xyza Mae Jónsdóttur sem keppir fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni Bocuse d’Or í Marseille um helgina. Undirbúningurinn hefur verið gríðarlegur síðustu mánuði og markmiðin há.

13/02/2026

Stífar æfingar í Bocuse d'Or eldhúsinu
Undirbúningur Bocuse d'Or liðsins er á fullu og hver mínúta nýtt til hins ýtrasta fyrir keppnina sem haldin verður 15.–16. mars í Marseille.
Snædís Xyxa Mae Jónsdóttir er kandidat Íslands í ár og skrifar jafnframt nafn sitt á spjöld sögunnar sem fyrsta konan til að keppa fyrir hönd Íslands í þessari virtustu matreiðslukeppni heims.
Áfram Snædís – áfram Ísland!

🍳 20% kynningarafsláttur af Arctic Heat pottum og pönnum.Arctic Heat eru vandaðir hybrid-pottar og pönnur sem sameina af...
23/01/2026

🍳 20% kynningarafsláttur af Arctic Heat pottum og pönnum.

Arctic Heat eru vandaðir hybrid-pottar og pönnur sem sameina afköst og þægindi í daglegri matreiðslu. Hybrid-tækni felst í því að grunnurinn er úr þriggja laga ryðfríu stáli sem tryggir jafna og hraða hitadreifingu á meðan ytra byrði er með viðloðunarfrírri húð og sérstöku mynstri. Þessi samsetning skilar frábærri steikingu og brúnun ásamt minni viðloðun sem auðveldar þrif.

Arctic Heat pottar og pönnur henta fyrir allar gerðir helluborða, gas, rafmagn, keramik og span og einnig má setja þær í ofn.

Sjáðu nánar á: fastuslausnir.is

Vörur og ráðgjöf fyrir veitingastaði, hótel og stóreldhús

Address

Höfðabakki 7
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

5174000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fastus lausnir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share