Leir 7

Leir 7 Leir 7 sérhæfir sig í framleiðslu á nytjahlutum og listmunum úr íslenskum leir. www.leir7.is Leir 7 ehf. Fyrirtækið mun m.a.

er fyrirtæki sem var stofnað í Stykkishólmi árið 2007 af Sigríði Erlu Guðmundsdóttur. Meginmarkmið fyrirtækisins er að framleiða vörur úr íslenskum leir sem kemur frá Fagradal á Skarðsströnd. Sigríður stofnaði Leir 7 með það að markmiði að nýta þekkingu sína á leirnum frá Fagradal, en hún hefur í gegnum tíðina aflað sér mikillar reynslu og þekkingar á þessum íslenska efniviði. Ásamt því að hafa no

tað leirinn í eigin verk hefur Sigríður unnið með og miðlað reynslu sinni til nemenda keramikdeilda MHÍ, Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólans í Reykjavík. Grundvöllur fyrir stofnun fyrirtækisins liggur í nýtingu á íslenskum leir. Þannig er hægt að nýta innlent hráefni og hefja framleiðslu þar sem íslenski leirinn er í aðalhlutverki. Þekking Sigríðar Erlu Guðmundsdóttir á íslenskum leir og keramiki er því fjöreggið í ferlinu. hanna og framleiða vöru fyrir einstaklinga, sveitarfélög og fyrirtæki sem vilja fá hönnun og sérframleiðslu á vöru tengdri starfsemi sinni. Unnið er með vöruhönnuðum og öðrum fagaðilum að metnaðarfullri framleiðslu á vöru sem sækir hráefni til landsins. Þannig er hægt að sameina krafta þeirra sem búa yfir þekkingu og getu á framleiðslu úr leirnum, hönnun, framleiðsluferli vöru, markaði, markaðssetningu og bjartsýni.

26/11/2025

Góðan dag
Til sölu eru tól og tæki Leir7.
Má þar nefna ofn, rennibekk, hnoðara, leirsteypudælu, hrærivél, loftpressu, góð vinnuborð, hráefni og ýmis handverkfæri.
Helst vil ég selja þetta í einu lagi en skoða
allt. Frekari upplýsingar í síma 8940425.
Bestu kveðjur, Sigríður Erla

Address

Aðalgata 20
Stykkishólmur
340

Telephone

+3548940425

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leir 7 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share