Gallery Lilja

Call Directions Website

Gallery Lilja Jurtalitað einband og annað handverk búið til með ást og umhyggju

Prjónahelgar eru alveg dásamleg uppfinning. Ég var svo heppin að vera boðið á prjónahelgi á Suðureyri við Súgandafjörð n...
28/09/2026

Prjónahelgar eru alveg dásamleg uppfinning. Ég var svo heppin að vera boðið á prjónahelgi á Suðureyri við Súgandafjörð núna um helgina hjá Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Guðlaugu Svölu Kaldá knits þar sem dekrað var við okkur á alla lund. Þrjátíu eldhressar prjónakonur áttu þar dásamlega helgi þar sem mikið var prjónað, talað og hlegið og ekki má gleyma veislumatnum sem Dúi eldaði fyrir okkur.
Ég var svo heppin að mér var boðið að vera með jurtalitaða bandið mitt til sýnis og sölu ásamt Kristínu hjá Vatnsnes Yarn - handlitað garn og Sigga Júlla tók þessa æðislegu mynd af okkur í söluhorninu okkar. Ófáar hespur skiptu um eigendur og ég fór alsæl heim og auðvitað með nokkrar hespur frá Kristínu líka :-) Það er ekki hægt að standa svona freistingar 💞💞
Takk fyrir mig og strax farin að hlakka til næstu prjónahelgar 🥰🥰

Framundan er dásamlegt haust og enn skemmtilegri vetur við að lita með öllum litunarjurtunum sem ég tíndi og þurrkaði í ...
05/09/2026

Framundan er dásamlegt haust og enn skemmtilegri vetur við að lita með öllum litunarjurtunum sem ég tíndi og þurrkaði í sumar.
Nú er allt á fullu hjá mér að vinda upp band og þvo það og svo sýð ég bandið í alúni sem er litafestir. Þess þarf til að litirnir verði traustir og dofni síður við notkun og þvott.
Ég er með nokkrar hespur í fanginu af einhverjum af þeim litum sem íslenskar jurtir gefa. Óhætt að segja að litirnir eru hver öðrum fallegri.

Eftir annasamt sumar er gaman að líta um öxl og gleðjast yfir öllum þessum frábæru viðtökum sem eg hef fengið með bandið...
24/08/2026

Eftir annasamt sumar er gaman að líta um öxl og gleðjast yfir öllum þessum frábæru viðtökum sem eg hef fengið með bandið mitt á hinum ýmsu mörkuðum. Garnival í Hafnarfirði í mars, Prjónagleðin á Blönduósi í júní, Markaðsdagar á Bolungarvík í júlí og svo allir markaðirnir hér á Tálknafirði og Patreksfirði.
Alls staðar hefur mér og bandinu mínu verið frábærlega vel tekið og mikið spurt og spjallað og verslað. Það er óskaplega gaman að finna allan þennan áhuga á jurtalitaða bandinu mínu og hvað hægt er að gera úr því.
Nú er farið að dimma á kvöldin og þá er alveg tilvalið að fara að vinda upp meira band til að geta byrjað að lita aftur í haust. Það er svo gaman að setja jurtir í pott og finna ilminn af sumrinu og njóta allra fallegu litanna sem verða til við litunina. Það er eins gott að eiga góðan l***r fyrir vorið og næsta sumar því ég ætla að halda áfram að mæta á alla þessa skemmtilegu markaði sem haldnir eru víða um land.
Myndin sem fylgir er af básnum mínum á Tálknafjöri, bæjarhátíðinni okkar hér í Tálknafirði sem var haldin síðustu helgina í júlí í dásamlegu veðri og mikill fjöldi fólks sótti okkur heim.

Hefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér hvernig jurtalitun fer fram?Ég ætla að sýna aðeins af því sem ég er að gera í ...
24/07/2026

Hefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér hvernig jurtalitun fer fram?
Ég ætla að sýna aðeins af því sem ég er að gera í jurtalituninni, áhöld, jurtir og efnin sem ég nota til að fá fram litina á bandinu mínu.
Ég verð á Tálknafjörsmarkaðinum á morgun laugardag milli kl. 14.00 og 17.00 með jurtalitaða bandið mitt og smásýnishorn af því hvað það er sem gefur litina í bandið mitt.
Hlakka til að sjá ykkur.

Allur búnaður og band komið í bílinn, tilbúið að fara á Markaðsdaga á Bolungarvík snemma í fyrramálið. Þar á meðal eru þ...
03/07/2026

Allur búnaður og band komið í bílinn, tilbúið að fara á Markaðsdaga á Bolungarvík snemma í fyrramálið. Þar á meðal eru þessar bleiku dásemdir sem leita að líklegum eiganda auk allra hinna litanna sem finna má í básnum mínum. Básinn verður merktur Gallery Lilja og vonandi verður hann auðfundinn.
Hlakka til að sjá ykkur sem flest.

Á laugardaginn kemur 04.07.26. ætla ég að taka þátt í markaðsdeginum á Bolungarvík og vera þar með jurtalitaða einbandið...
29/06/2026

Á laugardaginn kemur 04.07.26. ætla ég að taka þátt í markaðsdeginum á Bolungarvík og vera þar með jurtalitaða einbandið mitt. Hlakka til að sjá ykkur sem flest þar milli kl. 13.00 og 17.00

Markaðstorgið sjálft er miðpunktur Markaðshelgarinnar! Þar má finna fjölda sölubása sem selja list, handverk og alþjóðlegan mat, eitthvað fyrir alla!

Að aflokinni Prjónagleði taka við annir sumarsins svo sem að þurrka litunarjurtirnar til notkunar í vetur og ein af þeim...
24/06/2026

Að aflokinni Prjónagleði taka við annir sumarsins svo sem að þurrka litunarjurtirnar til notkunar í vetur og ein af þeim allra skemmtilegustu er maríustakkurinn. Hann er í blóma núna og kraftmestur til litunar á þessum tíma. Það er því alveg kjörið að klippa hann og setja í þurrkun þegar veðrið er þurrt og hlýtt.
Svo er heilmikil vinna að hreinsa illgresið úr beðunum en það virðist alltaf vaxa betur en allt annað sem verið er að rækta :-)

Dásamleg Prjónagleði helgi að baki og ég er komin heim með yndislegar minningar og gleði í hjartanu yfir þeim frábæru mó...
08/06/2026

Dásamleg Prjónagleði helgi að baki og ég er komin heim með yndislegar minningar og gleði í hjartanu yfir þeim frábæru móttökum sem ég fékk við jurtalitaða bandinu mínu.
Takk öll sem komuð í básinn minn og spjölluðu og spurðu og klöppuðu bandinu mínu og keyptu líka.
Hlakka strax til næstu Prjónagleði því það var algjörlega til fyrirmyndar allt utanumhald og skipulag. Áfram Prjónagleði - Iceland Knit Fest

Prjónagleðin á Blönduósi er framundan, bara 11 dagar þangað til gleðin byrjar. Gallery Lilja verður að sjálfsögðu með og...
24/05/2026

Prjónagleðin á Blönduósi er framundan, bara 11 dagar þangað til gleðin byrjar. Gallery Lilja verður að sjálfsögðu með og vörurnar mínar eru auglýstar undir lógóinu Handverk frá Lilju. Hlakka til að sjá ykkur og njóta helgarinnar og garnveislunnar með ykkur öllum.
Sjáumst á Prjónagleði - Iceland Knit Fest

Address

Tálknafjörður
Tálknafjörður
460

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gallery Lilja posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share